06.06.2007 22:02:52 / blendaosk

Barnaland

Ég er komin með heimasíðu inná Barnalandi (Beggu og Bubba barn) endilega kikið því bráðum læsi ég síðuni og aðeins útvaldir fá aðgang.....muhahahah:klikk::klikk:..:lol:

Svo væri æði er einhver mundi nú vilja hjálpa mér að laga þessi litlu smá atriði sem vilja svo mikið mikið fara í taugarnar á mér svo sem stærðina á forsíðu myndini ,Ég er búin að sitja sveit við tölvuna frá því kl 18 við að setja myndir inn!!!!!:frown::frown:


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.05.2007 16:00:22 / blendaosk

Allt í góðu

loksins hefur maður tíma í smá skriftir... Ég fór um daginn í 20v sónar og allt lítur bara mjög vel út  og allir voða hressir með þetta. en hef þetta ekki leingra  að þessu sinni en ég er að vinna í því að færa mig inná Barnaland svo ég geti sett inn myndir og svoleiðis.......þangað til næst SEE YA:lol::lol: Og já eitt en ef einhver hefur áhuga á að kaupa yndislega bílinn minn eða þið vitið um einhverja skvísu sem langar í svona stelpubíl þá endilega látið mig vita....Það er víst ekki mjög henntugt að vera komin með lítið kríli og verandi  á 2ja dyra smá bíl:(


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 20:13:10 / blendaosk

Endalaus hamingja

Ég er svo glöð að ég er að springa...en ykkur öllum tilkynnist það hér með að von er á litlu kríli í lok Ágúst byrjun Sept..!!!    Þannig að það er endalaus gleði hér á bæ:lol::lol:.. Báðr ömmurnar alveg að missa sig í gleðini rétt eins og allir aðrir sem vita þetta.Svo er ég bara búin að vera endalaust hjá læknum,ljósum og næringarfræðingum svona til þess að tryggja að það sé nú allt í góðu lagi með allt.

Annars er allt gott að frétta af okkur hjónum bara vinna,borða og sofa rétt eins og allir venjulegir verkamenn gera alla daga. En læt heyra í mér aftur fljótlega með meiri fréttir af gangi mála:lol:


» 11 hafa sagt sína skoðun

08.12.2006 08:51:34 / blendaosk

Það var mikið

o my good hvað ég er léleg í þessum leik...!!:lol::lol: En dagurinn í gær var algjör viðbjóður!!..ég var hálfnuð mer vinnudaginn þegar ég fer að heyra einhvað voða furðulegt hljóð í bílnum og það fer alltaf versnandi svo ég ákvað að fara með hann í tékk uppí Heklu þar sem ég átti bara að þurfa að bíða í ca 30mín en NEI...... ég þurfti að bíð í 2 klukkutíma og 45 mín bara til þess að fá að heyra það að einhver ballansstöng væri brotin og ég mætti ekki keyra bílinn meira.Svo þegar ég kom niðrí vinnu aftur var kl orðin 17:00 svo ég ákveð bara að fara heim þá byrja ég aftur að heyra skrítið hljóð svo ég fer að tékka á þessu þá er einhver fucking listi á bílnum að detta af............AAAAAAA hvað ég var pirruð:lol::lol: Þá þurfti ég að fara með bílinn til afa til að hann gæti lagað þetta og það tók nú sinn tíma, svo hélt ég nú að dagurinn gæti nú ekki versnað mikið meira en það hafði ég sko rangt fyrir mér..Ég fór í Smáralindina til að kaupa skóna sem ég sá en nei þá voru þeir ekki til í mínu númeri svo það var fyluferð svo for ég heim og rak tána svakalega hrillilega í.... svo ég kastaði mér í gólfið og grenjaði:(:(:(

Svona dagar eru ógeðslegir!!! en þangað til næst, love ya all


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.11.2006 16:45:10 / blendaosk

Halló Halló

Krakka þið verðið að hætta þessu, mér er bara farið að líða illa:lol:!!!!.... Hér er ég að reyna að gera blog fyrir YKKUR svo þið getið fylgst með mér alltaf því þið elskið mig svo mikið og allir vilja alltaf vera að hringja í mig og vera með mér...hí hó:lol::lol::lol:... svo er bara endalaust verið að drulla yfir mig að ég sé léleg að plögga drasli hér inn. Ég er að gera þetta fyrir ykkur svo símrikningurinn hjá ykkur verði ekki of brjálaðislega hár því þið eruð alltaf að hringja í MIG...hehe:lol::lol:

Nei nei, maður má ekki missa sig svona í egóinu, ég skal reyna að vera meira dugleg að blogga ég er bara alltaf svo bissý því ég er svo vinsæl......hí hí hi   (ég er bara ó stöðvandi egóisti núna, hvað er að gerast??):lol:  ELSKA YKKUR ÖLL!         


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 17:46:20 / blendaosk

myndir...


jæja eins og þið sjáið eru nú komnar einhverjar myndir hérna inn á þessa síðu ;) þar sem hún guðný vinkona er búin að redda mér :P
en á eftir að setja fleiri... ætla að láta hana kenna mér svo ég geti nú reddað þessu sjálf hehe...
en það eru fleiri myndir inn á þar sem stendur myndir...

» 4 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 16:56:16 / blendaosk

Guðný til bjargar

Þar sem ég er greinilega ekki jafn mikið tölvunörd og þið hin og kann ekki að setja inn myndir þá ættlar hún Guðný mín að redda þessu þannig að vonandi verður þetta allt komið inn sem fyrst (núna er ÖLL pressan komin yfir á þig dúllan mín:lol::lol::lol:).Annars er allt gott að frétta, ég er orðin hress og kát aftur en vinnan er að kalla svo bless elskurnar:lol:


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.11.2006 14:34:36 / blendaosk

veikindi

jæja það er ekkert búið að gerast hjá mér síðan síðast ég er búin að vara veik alveg síðan á mánudaginn síðasta....með hita og læti bara og hef ekkert farið út nema í vinnuna aðeins á miðvikudagin þegar ég hélt að mér væri batnnað en fór svo heim eftir að vera búin að vinna í tvo og hálfan:):):) Ég er nú samt að hressast núna og er barasta að hugsa um að fara í smá Kringluferð híhí, maður hressist alltaf við að kaupa sér einhvað smá:lol: en þangað til næs....BÆÆ:lol::lol::lol:


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 21:27:43 / blendaosk

jæja þá er helgin búinn:(

Ég vissi að það væri einhver ástæða fyrir því að ég hef ekki komið með blog fyr….

Ég og tölvan mín erum EKKI vinkonur þessa dagana hún gerir allt sem ég bið hana ekki um að gera og ef henni dettur í hug að gera það sem ég vill að hún geri þá tekur það fimm og hálfann dag…. Pirrandi dauðans!!!

 

 



 En allavega tilraun nr 3 til að koma með smá færslu hingað inn(kominn smá pressa frá the girls)

Það var alveg massa massa mikið að gera um helgina en það er pott þétt djammið heima hjá Halla og Aldísini minni sem stendur uppúr en það var nú þannig að við byrjuðum heima hjá þeim um 11 leyti að djúsa og vorum þar til um 4 þá loksins drulluðumst við niðrí bæ og inn á Vegamót þar var endalaust meira drukki og dansað eins og hauslausar hænur, og Halli minn ég vill nú meina að ég hafi unnið þessa keppni…hí hí híJ

Any way svo um 6 leyti ákveðum við Gyða og Brynhildur bara að beila á þessu en þó ekki fyr en eftir að við hefðu fengið okkur vöfflu og við röltum af stað að vöffluvagninum og allt gengur eins og í sögu þangað til að við erum komnar með vöfflurnar í hendurnar þá gerist það fyndnasta í heiminum………(SOYYR Gyða mín en ég bara verð að koma þessu frá mér annars bara spring ég) við erum sem sagt rétt að komast inn á skutlið þá kemur þessi svaka vindkviða og kjóllinn hennar Gyðu bara uppfyrir haus og gellan gat ekkert gert..heheheJ JJ

Ég og Brynhildur fáum þetta líka fallega hláturskast og þá dettur gellan á bossann og þá fyrst hélt ég að ég mundi kafna úr hlátir það er ekket í heiminum sem mér finnst fyndnara en fólk sem dettur!!!!! Svo erum við rétt komnar með aðra löppina inn þá er bara eins og einhver slá vöfflurnar úr höndunum á okkur og þær detta beint á gólfið svo við þurftum að fara út og kaupa nýjar, við vorum ekki lengi að troða þeim í smettið á okkur og tókum svo bara limmu heim enda klukkan farin að ganda 8 um morguninn

 

 



Svo á sunnudaginn gerðist svolítið hræðilegt!!!!!.....................ég þurfti að þrifa sjálf og alein í fyrsta skipti í næstum eitt og hálft á…..ÖMURLEGT (fjandans vinnukonan þurfti endilega að fara heimsækja fjölskylduna sína yfir jólin og gat ómögulega skúrað smá fyrir mig áður,ég meina komon jólin eru ekkert strax…hí híJ

 

 



Takk fyrir mig fallega fólkið mitt……..Bráðum fara svo að koma fullt að myndum hér inná eða um leið og ég og tölvu helvítið sættumst


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.11.2006 16:25:46 / blendaosk

Þetta var bara gaman

Ef þessi sumarbústaðar ferð var ekki geðveik þá veit ég ekki hvað...!! Við byrjuðum að djúsa strax í bílnum á leiðini uppeftir (allar nema Jenný, hún keyrði) svo drukkum við meira og meira, grilluðum okkur svo hamborgara,fórum í drikkju spil og skelltum okkur svo í heitapottinn með glimmeri og bubblum og þá fyrst byrjaði ballið........hehehehe förum ekket nánar út í það stelpur,er það nokkuð?? Svo seinna kvöldið var nokkur veiginn gert það sama nema að Emilía var búin að bætast í hópin, Guðný og Jenný elduðu alveg ógeðslega góðan kjúklingarétt. Síðan var farið í pottinn aftur og það var bara snild!!!! (alveg merkilegt hvað þessir pottar geta kallað fram það versta í svona annars saklausum stelpum)híhí En get ekki haft þetta miklu leingra þar sem maður veður víst að passa sig í að segja ekki of mikið án þess að vera búin að fá samþykki allra í hópnum....he he he

» 4 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 12:45:10 / blendaosk

Loksins!!!!!!!

Jæja stelpur núna geti þið hætt að hringja svona endalaust mikið í mig ég er komin með blogg ...JIBBY:D

» 0 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Dagsetning
23. febrúar 2012